Ég skrifaði glósur í þar síðustu viku, en bloggerinn var eitthvað seinn og það vistaðist ekkert hjá mér, datt alltaf allt út, TVISVAR!!! Svo ég missti út bloggið mitt um Hot potatoes ofl. En vonandi kemur þetta ekki fyrir aftur.
Hildur heitir hún og Hildur er hún kölluð. Reykvíkingur í húð og hár, sem býr í Hafnarfirði. Dóttir Bjargar og Kristjáns og ól manninn í Hlíðunum fyrstu ár ævi sinnar. Hún er greinilega ekki mjög þver því það tók manninn hennar ekki langan tíma að sannfæra hana til að flytja til hans heimabæjar. Það er erfitt fyrir þessa Reykjavíkurmær að viðurkenna að börnin hennar séu víst fæddir Gaflarar, en hún er rólega að sætta sig við þennan bæ, enda ekki alslæmur ;-þ
0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home